4.jan 2008 er dagsetninginn hjá mér í dag og það merkir bara það að hún amma á eskó á afmæli í dag, til hamingju með það amma á eskó.
Já jólin og áramótin voru sem sagt að klárast og ég verð bara að segja að þetta verði með eftirminilegrum jólum sem ég hef átt, ég hef ekki fengið sona mikið af gjöfum eins og í ár
sem er nátúrlega bara snild, svo flutti ég endanlega að heiman milli jóla og áramóta en ég leigji þar alveg hreint geggjaða íbúð af heni Rögnu kristínu, og var haldið smá áramóta partý þar sem ég held að hafi bara heppnast ágætlega þar sem fullt af fólki mætti og það var kvartað yfir hávaða, sem sagt bara fullorðins partý eins og einhver hefði orðað það.
En núna er ég um borð í síldarfrysti skipinu Guðmundi VE29, er þar reyndar bara að leisa af til að byrja með, aldrei að vita nema manni bjóðist fast pláss hérna ef maður stendur sig vel í vinnuni, við erum núna stadir einhver staðar við snæfellsnesið (held ég) það er nú reyndar ekkert sérstaklega gott veður í augnablikinu en það á bara eftir að lægja einhvern tíman fljótlega.
Ég held að þetta sé bara orðið gott hjá mér í bloggi, er að spá í að fara leggja mig hérna í sófanum þar til næst segji ég bara turu lú...